Ópera Skagafjarðar  I  La Traviata  I RigolettoTvær óperurUmfjöllun  I  Myndir

Ópera Skagafjarðar var stofnuð af Alexöndru Chernyshovu og Jóni Hilmarssyni í desember 2006 í þeim tilgangi að setja upp óperur í Skagafirði.
 
Markmið Óperu Skagafjarðar er að styrkja enn frekar sterkt tónlistarlíf í Skagfirði með uppsetningu á óperu. Stefnt er að því að gera þetta að árlegum viðburði, þ.e.að setja upp eitt til tvö óperuverk á ári, þrjár til fjórar sýningar hverju sinni. Skagafjörður er þekktur fyrir að eiga langa og sterka hefð í kórum og söngvurum. Þessu verkefni er ætlað að byggja á þeirri sterku hefð, þ.e. að laða saman söngfólk/söngnemendur/kórafólk og hljómlistarmenn í Skagfirði í metnaðarfullri uppsetningu á óperuverki.
 
Um er að ræða viðamiklar uppsetningar þar sem að koma 30-35 manna óperukór, 6-10 einsöngvarar, 14-18 hljóðfæraleikarar, þrír stjórnendur – í fyrsta lagi stjórnandi hljómsveitar, öðru lagi stjórnandi óperukórsins og þriðja lagi leikstjóri verksins, 8-10 manns koma síðan að verkefninu með einu og öðrum hætti í undirbúningi og framkvæmd verksins. Samtals koma því að verkefninu um 60-70 manns með einum eða öðrum hætti. Langflestir sem að verkinu koma, koma frá Skagafirði og nágrenni.
 
Hluti af því ferli að bjóða upp á frægustu og erfiðustu óperur heimsins er að undirbúa vel þá einsöngvara og kórfélaga sem taka þátt í verkefninu. Við viljum efla og styðja norðlenska söngvara í þessu ferli, m.a. verður boðið upp á einsöngstíma með leiðbeinandi og undirleikara / nótnalestur / ítölskunámskeið / leiknámskeið og jafnvel masterclass með erlendum leiðbeinendum. Gert er ráð fyrir æfingum einu sinni til tvisvar í viku.  
 
Tenging við Söngskóla Alexöndru. Alexandra Chernyshova, listrænn stjórnandi Óperu Skagafjarðar, stofnaði söngskóla sem tók til starfa í byrjun árs 2008. Fullbókað er í skólann, 30 nemendur og nokkrir á biðlista. Skólinn og verkefnið Óperu Skagafjarðar styðja við starf hvors annars því flestir nemendur skólans geta tekið (taka) þátt í verkefnum óperunnar og fengið því ómetanlegt tækifæri og reynslu á því að koma fram í krefjandi og metnaðarfullum óperusýningum.
 
Nýnæmi þessa verkefnis er að þetta hefur aldrei verið gert áður í Skagafirði, áhugi, kunnátta og vilji er til staðar að gera þetta þannig að sómi sé að. Stefnt er jafnframt að því að festa verkefnið í sessi og gera þetta að árlegum viðburði, þ.e. að setja upp eitt til tvö óperuverk árlega og sýna hvert verk 4-6 sinnum. Verkefnið styrkir ennfrekar þá sterku söng- og tónlistarhefð sem Skagfirðingar geta státað af. Jafnframt má gera ráð fyrir því að verkið veki athygli á landsvísu og dragi til sín áhorfendur víða að. Verkefnið styður því án efa ferðamennsku, ímynd Skagafjarðar og annað áhugavert sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða.
 
 
DreamVoices ehf • Austurgötu 11 • 565 Hofsósi • dreamvoices@dreamvoices.is • S: 894-5254 / 898-6364
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is