Nafn: Alexandra Chernyshova, fædd í Kiev, Úkraínu.
Menntun: BA í ensku, spænsku og heimsbókmenntum.
Tónlistarmenntun: Odessa Music Academy by N.Nezdanova/vocal. High Musical College by R.Glier/vocal. Music School/piano
Fjölskylda: Jón, eiginmaður, Alexander Logi og Nikolai Leo synir.
Foreldra: Eugenia og Alexandre.
Systir: Mariya
Uppáhaldsstaðir: Barcelona/Spain. Odessa og Kiev/Úkraínu. Landslag og náttúra og sérstaklega jöklar á Íslandi. Paris/Frakklandi. Óperuhús/Italíu
Minnistæður atburður: Fimm ára, þegar ég byrjaði að spila á píanó.
Uppáhaldsdrykkir: Kampavín og heitt súkkulaði.
Uppáhaldsmatur: Sjávarréttir, ís, grillmatur á Íslandi og Úkraínskir réttir.
Alexandra á netinu:
Menntun:
1999-2003 - Odessa A.V. Nezhdanova State Music Academy, hæfni í óperu- og tónleikasöng og kennsluréttindi. Specialist Diploma, einkunn með heiðri
1996-2000 - Kiev State University of Linguistics, menntun í tungumálum, með áherslu á ensku og spænsku, heimsbókmenntun og heimspeki. Hefur einnig kennsluréttindi í þessum tungumálum.
1996-1999 - R.M.Glier State Higher Music College á sviði tónlistar og söngs fyrir kennslu. Junior Specialist Diploma, einkunn með heiðri.
1985-1996 - Kiev T.G.Shevchenko High School of levels I-III No.112. Hlaut sérstök silfur verðlaun fyrir námsárangur.
1985-1994 - Kiev Y.S.Stepovoy Music School No. 1, með áherslu á píanó, öll þrep.
Atvinna og viðurkenningar:
Í janúar 2008 stofnaði Alexandra eigin söngskóla, fullbókað er í skólann, rúmlega 30 nemendur. Skólinn er staðsettur í Villa Nova á Sauðárkróki.
Alexandra hefur haldið um 30 tónleika frá því að hún kom til Íslands 2003, gefið út einn geisladisk, annar diskur í undirbúningi þessa dagana og stofnað Óperu Skagafjarðar árið 2006, þar er hún listrænn stjórnandi. Ópera Skagafjarðar sýndi La Travita árið 2007-2008. Núna er verið að undirbúa sýningar á Rigoletto, sýningar verða um vorið 2009.
Alexandra starfaði við Tónlistarskóla Skagafjarðar frá 2005 til 2007 við söng- og píanódeildina. Frá því að hún kom til starfa þrefaldast fjöldi nemenda á tveimur árum.
Í janúar árið 2003 var Alexandra fastráðin við óperuna í Kiev ásamt því að syngja einsöng með þekktum karlakór í Úkraínu, Boyan.
Í apríl, árið 2002, var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni Nýtt nafn í Úkraínu. Síðar það ár tók hún þátt í alþjóðlegri keppni í Grikklandi, Rhodes, hafnaði þar í fjórða sæti yngst keppenda.
Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev.